þriðjudagur, apríl 01, 2003

hvað er þetta eiginlega eru allir sem ég þekki hættir að blogga Sirrý frænka mín og Toffy systir mín hafa ekki skrifað í óralangan tíma en mamma hún stendur sig sko hún er sú eina sem stendur sig eitthvað í stykkinu hún bloggar alltaf reglulega sem er bara ógeðslega kúl. En svo að ég vindi mér bara í aðra sálma þá er ég byrjuð að læra fyrir næsta próf það er svo geðveik mikið sem þarf að lesa þetta eru sko tveir tveggja eininga áfangar settir í einn þriggja eininga áfanga sem þýðir að við erum í sona tilboði þrír fyrir eitt námskeið sem er ekki nógu gott því að þetta tengist lítið sem ekki neitt eða það er mín skoðun þetta er hreyfing, næringarfræði og heilsufræði jú þetta tengist alveg en maður myndi vilja læra meira um hvert og eitt við fengum t.d. bara þrjá fyrirlestra um næringarfræði og við þurfum að taka próf í því nenni ekki meira farin að sofa skrifa seinna bæbæ
|