miðvikudagur, apríl 30, 2003

Jæja komin heim eftir vettvanginn í dag og fund með Sigurlaugu, það var alveg mjög fínt. Ég spurði hana um verkefnin og hvort að ég væri á réttri leið með þau og hún sagði að þetta væri alveg ágætt hjá mér. Ég lét líka börnin gera svona fingramálningu í morgun það er sko hluti af vettvanginum. Krökkunum fannst þetta algjört æði ða fá að sulla með málninguna á borðinu eins og þau vildu. En hvað haldiði að ég sé að fara að gera í kvöld? ég er að fara á showið með Halla og Ladda gæti trúað að það verði bara mjög góð skemmtun enda gamall Halla og Ladda Fan (hefði gengið í vinsældarklúbbinn þeirra ef ég hefði vit á því og ef hann væri til)
|