sunnudagur, maí 16, 2004

Komin heim úr bústað

Komiði sæl gott fólk nú er ég komin heim úr bústaðnum og líka búin að vera breyta lúkkinu á síðunni minni og lúkkinu á síðunni hennar mömmu, hef greinilega ekki mikið að gera eftir að ég kom heim en Gunni er í bíó á Van Helsing, mynd sem mig langar ekki mikið að sjá þannig að ég fór ekki. Ég fer að vinna á morgun klukkan hálf níu ekki klukkan níu eins og í síðustu viku þannig að maður þarf að vakna fyrr úff það verður erfitt en ég er nú reyndar búin að slaka vel á í sumarbústaðnum yfir helgina og liggja í heita pottinum með tærnar upp í loftið, helvíti gott. Á kannski eftir að setja inn myndir úr bústaðarferðinni hérna á myndasíðuna sé til. En man ekki hvað ég ætlaði að skrifa meira þannig að það getur ekki verið merkilegt jæja segi þetta gott í bili skrifa meira síðar ;)
|