fimmtudagur, október 18, 2007

munið þið eftir þessum....

þeir voru ekkert smá svalir þegar ég var c.a. 12 ára þá vorum við að semja dansa og þannig við þetta lag og fleiri. Ógeðslega sætir og miklir dansarar hehehe

|

Ég veit, Ég veit

það á ekki að gera grín að svona fólki en ef þið fylgist með textanum þá eru þeir bara að gera grín að sjálfum sér.

|

föstudagur, október 05, 2007

Ekkert smá pirruð....

Er að prjóna lopapeysu á hann Gunna minn sem er nú kannski ekki til frásögufærandi nema að ég var að prjóna fyrri ermina og er búin að vera 3 kvöld að prjóna og var alveg að vera búin með hana þegar ég fatta að ég var búin að prjóna helvítis ermina með vitlausum prjónum allan tímann. Alveg neðst niðri átti ég að skipta yfir í stærri prjóna. Ég er búin að rekja upp alla helvítis ermina og ætla ekki að byrja á henni aftur fyrr en á morgun.

Ætla núna að fara að sofa og prjóna svo seinna.

kv.
Laufey
|