miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Costa Del Sol

Haldiði ekki að daman sé bara að fara til Costa Del Sol á morgun. Shit hvað það verður nú gaman. Liggjandi á ströndinni með tærnar upp í loftið og öll í sandi ekki fer ég mikið í sjóinn því að mér er ekkert vel við að fara þangað gætu nú komið einhverjir fiskar og bitið mig og ekki minnast hákarlana sem gætu allt í einu birtst þarna við ströndina. En ég get legið á ströndinni og spilað standblak og eitthvað þannig eða bara á sundlaugarbakkanum. En eins og þið lesið og kannski sjáið þá ætla ég að liggja í sólbaði og koma eins og svertingi til baka héhéhé......

Annars er maður búinn að hafa það fínt í sumarfríinu búin að vera heima og gera ekki neitt. Það er alveg merkilegt hvað maður hefur nóg að gera við það að gera ekki neitt skil ekki hvernig maður fer að því að vinna aftur. Er sammála Þórey sem er að vinna með mér að held ég þurfi aðlögun þegar ég kem til baka.

En jæja ég ætla að halda áfram að gera ekki neitt blogga kannski eitthvað frá spáni annars blogga ég bara þegar ég kem heim.

kveðja
Laufey
|

laugardagur, ágúst 19, 2006

Hvað er klukkan?

já hvað er klukkan gæti einhver verið að spyrja þegar hann les þetta blogg en hann þarf ekki að leita langt heldur er komin klukka hérna til hliðar á síðunni minni og mér finnst hún bara helvíti flott verð ég nú bara að segja.

Ætla ekki að hafa þetta langt í dag er að fara að horfa á Gunna hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu þannig að sjáumst

kveðja
Laufey
|

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Sælt er að eiga sumarfrí.....

það hefur nú margt gerst síðan ég bloggaði síðast. Gunni er kominn heim aftur, ég er komin í sumarfrí og Gunni farinn og kominn til baka frá Sviss.
Verð reyndar að viðurkenna það að ég varð svolítið skelkuð þegar Magni lenti í þremur neðstu sætunum en ´hann var geðveikt flottur þarna á sviðinu og djöfull var ég fegin að Zayra dytti út ég þoldi hana bara hreint ekki en ég ætla að fara að knúsa hann Gunna minn hann var að koma úr dyrunum frá Sviss

Kveðja
Lubban
|

föstudagur, ágúst 11, 2006

Getiði hvar ég er....

Getiði hvar ég er:-D
Myndina sendi ég
Sent með Símbloggi Hex


Sendi þessa mynd reyndar á föstudaginn... en var að birta hana núna ;)
|