föstudagur, október 28, 2005

næstum því satt

You Are 24 Years Old

Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.
|

fimmtudagur, október 27, 2005

Brilliant.....

fór í gær í leikhús, það hefur nú bara ekki gerst síðan ég og Gunni fórum einhverntímann í Borgarleikhúsið man ekki lengur hvað leikritið heitir man bara að þetta var einhver hátíðarsýning og var eftir Hallgrím Helgason. Það var mjög gaman að því. En ég fór með vinnunni á Brilliant Skilnaður og ég verð nú bara að segja að þetta var algjörlega brilliant skilnaður hún er algjör snillingur í þessu hlutverki hún Edda Björvins. Ég hef aldrei fílað hana sem leikkonu en þarna stóð hún sig með mikilli prýði og var virkilega góð alein á sviðinu allan tímann get ekki ímyndað mér að það sé eitthvað auðvelt.

Ég er örlítið farin að hlakka til jólanna, langar að fara að gera jólakortin þarf að fara að kaupa efni í það þarf að skrifa slatta af kortum.

En jæja fannst ég bara að verða að blogga eitthvað
kveðja
Laufey
|

laugardagur, október 15, 2005

Menningarferð og fleira

Ég fór í menningarferð í gær með leikskólakennurum í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi. Það var mikil stemming og fórum við 5 af Bæjarbóli allar með grænan blett á enninu en þemað var allt er vænt sem vel er grænt. Það var ákveðið í gær að leggja aðeins meiri metnaði í þemað á næsta ári, ekki bara einhvern grænan blett sem eyddist út og þegar leið á kvöldið var eins við hefðum allar rekið okkur í og værum með marblett á enninu. Þessi hópur hélt af stað í þremur rútum frá Perlunni og ekið var á Bændaskólann á Hvanneyri. Þar fengum við að sjá Ullarsetrið sem var mjög gaman að sjá en hefði ekki keypt neitt þarna því að þetta voru frekar dýrar vörur eða það fannst mér barnavettlingar á 2þús og eitthvað. síðan gengum við í gegnum eina hurð og vorum þá komnar á búvélasafnið sem var eins og nafnið gefur til kynna fullt af traktorum og búvélum (er traktor kannski búvél??? Hvað segir þú pabbi um það???? spyr fávís dóttir hehehe eftir það var gengið smáspöl og okkur skellt upp í kirkju og við eitthvað frædd um hana það rann nú eiginlega af manni þegar Krissa fór að tala um óvissuferð sem hún hafði einu sinni farið í og að henni hefði hreinlega verið skellt í messu hehee þar hefur átt að frelsa allt liðið á einu bretti gekk ekki nógu vel að sögn Krissu því að það sátu bara eitthvað einn bekkur eftir þegar messunni lauk. En það reyndist ekki vera svo slæmt heldur var bara talað eitthvað um kirkjuna og síðan haldið í Fjósið þar sem litlu sætu kálfarnir voru og auðvitað líka stóru beljurnar. Eftir það var haldið í sveitafitness sem felst í því að gera eitthvað af verkum bóndans eins og að hlaupa yfir rúllubagga, setja niður kartöflur, negla í staura, klifra upp í kaðal, snúa ró á bolta og blása upp blöðru sem þeir gera mikið af bændur nú til dags. Eftir það var haldið að Skessubrunni þar sem við fengum einhvern mat verð nú að segja að ég hef alveg fengið betri mat áður og ég verð bara að segja það voru einhverar fiskibollur þarna og þær voru hreinn og klár vibbi og ég er ekki að ýkja neitt langaði til að æla þegar 1/2 bolla fór upp í mig óvart úff (hrollur fer um mig).

Í dag fór ég í húðhreinsun, það var algjört æði þrátt fyrir smá sársauka á meðan verið var að kreist helstu bólur á andlitinu á mér en ég segi bara beauty is pain og var bara mjög sátt við þetta og beauty er líka dýr ;)keypti nefnilega fullt af einhverju svona andlitsvatni, andlitssápu og krem þannig að þetta var svolítið mikið dýr en þannig er það bara.

Eftir hreinsunina fór ég að hitta Rósu bestu vinkonu mína og kærasta hennar hann Nic en hann er að vinna í Þýskalandi þannig að hann var að heimsækja hana og við skelltum okkur á Café Paris og síðan fórum við í Kolaportið þvílík fýla þarna inni og það er alveg merkilegt hvað sumu fólki dettur í hug að selja og halda þeir virkilega að fólk kaupi ógeðslega pelsa eða kjóla sem langalangalanga amma þeirra átti úff fékk bara hroll og skemmti mér konunglega yfir því hvað fólk er vitlaust hehehe nei bara grín en mér finnst samt alveg ótrúlegt hvað fólk heldur að það geti prangað inn á fólk en svo er líka margt þarna inni á milli sem er örugglega bara mjög fínt.

Jæja farin að gera eitthvað
|

þriðjudagur, október 11, 2005

spinning og fleira

fór í spinning í morgun hélt ég myndi æla djöfull var það erfitt en ég lét mig nú hafa þetta er lúmskur andskoti, þegar maður horfir á þetta þá hugsar maður spinning ekkert mál að hjóla en maður kannski sér bara augnablik þar sem fólk fær að setjast, get svarið það hjólaði hátt í 20 mínútur standandi úff hvað það var erfitt.

Átaksnámskeiðið gengur ekki eins og skildi gekk vel fyrstu tvær vikurnar en ekkert gengur núna... (veit alveg hvað ég er að gera vitlaust) en ætla aftur og það skal ganga betur núna er ég byrjuð fyrir alvöru að breyta um lífstíl og það stendur hérna skrifað þannig að ef þið mætið mér í Kringlunni 60kg þyngri en ég er núna þá skuluð þið minna mig á það og spyrja hvað varð um lífstílinn sem þú bloggaðir um..... ekki hika við það ;)

Allavega fólk var eitthvað farið að nölla yfir bloggleysi hjá mér. Þannig að ég skrifaði eitthvað ekkert skemmtilegt samt sem áður.
|

þriðjudagur, október 04, 2005

Enn eitt klukk

já hún Toffy klukkaði mig aftur úfff....

1. Ég er minnst af mínum systkinum (samt elst)
2. Ég er á átaksnámskeiði sem gengur ekki nógu vel
3. Mér finnst gott að borða
4. Ég er þreytt
5. Ég er kona

jæja þá er þetta búið
þið eruð að biðja um tilgangslausar upplýsingar

Annars er ekki mikið að frétta af mér ég er bara að vinna eins og venjulega, er að fara á Akranes á morgun að skoða eitthvað steinasafn með skólahópinn hugsa að það verði mjög gaman verðum á ferðinni mest allan morgun dagin verðum ekki komin til baka fyrr en um kaffi ágætist tilbreyting á amstri dagsins. En jæja ég er nú bara orðin nokkuð þreytt enda búin að vera límd yfir The Sims 2 og Sim city 4 í allt kvöld skil reyndar ekki í Sim City ég er alveg hrottalega léleg ég er svona bæjarstjóri sem hreint og beint kann ekki að vera bæjarstóri ég bara lendi alltaf í mínus mjög furðulegt ;)

Allavega farin að sofa

Bestu kveðjur frá
Lubbunni
|