Í skólanum, Í skólanum.....
er skemmtilegt að vera ;)já það er bara gaman í skólanum, en þetta verður líka frekar strembin önn tvö stór verkefni þ.e. lokaverkefnið og þróunarverkefni sem eru þannig að við verðum að vinna í þessum verkefnum í allan vetur ;)og svo er námskeiðið samskipti og stjórnun... það er s.s. fínt námskeið en annar kennarinn get svarið það að hún hefur verið prestur í fyrralífi.... hún talar svo hægt.. ég er ekki að ýkja þetta hún telur allavega upp að 10 á milli orða úff maður má ekki mæta þreyttur í tíma til hennar þá er garentí að maður sofnar allavega þarf maður að einbeita sér vel að því að sofna ekki hehehe það er samt plús við það að hún tali svona hægt held að ég hafi aldrei glósað svona mikið í tímum hehehehe en hún er mjög fín þrátt fyrir að hún tali hægt
Ætla að fara aðeins út í Íslenska landsliðið í handbolta þeir unnu Alsírbúa með MIKLUM mun þeir hefðu betur spilað svoleiðis alla keppnina þá væru þeir ekki dottnir út en þeir stóðu sig samt bara ágætlega þetta getur líka verið spurning um heppni ;)
Jæja er hætt í bili
Kveðja
Lubbabeib ;)
hrottalega fúl!!!! var að horfa á landsleikinn áðan við rússa og við hefðum alveg átt að geta unnið þá omg hvað ég er svekkt þeir jöfnuðu í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik þá klúðruðu þeir málinu algjörlega og leikurinn endar í 7 marka mun..... ´
ÁFRAM ÍSLAND!!!!!!
þreytt var vöknuð klukkan átta í morgun sem er sjaldgjæft því að ég er svo lítið í skólanum en ástæðan var sú að ég er að fara að gera verkefni sem tengist leikskólum og ég fór að heimsækja einn leikskóla í morgun sem heitir

Já skólinn er byrjaður og ég skil ekki þessa áráttu hjá kennurum að láta mann lesa á norsku... ég var að reyna að lesa áðan einhverja norska grein og ég bara hreinlega skil ekki skít í henni... eða jú eitt orð sem hefur komið oft fyrir í lesefninu sem ég er búin að vera að læra undanfarin 3 ár og það er barnehaven = leikskólinn, meira skil ég ekki.

